Opnunartímar um páska 2024

Sundlauganótt

Deildu færslunni

Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 9. febrúar næstkomandi. Þá verður frítt í tólf sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu á milli 17:00 – 22:00. Þar verða uppákomur og fjölbreytt dagskrá. Gestir fá að upplifa skemmtilega kvöldstund í mögnuðu myrkri. Ljós, myrkur og gleði verður allsráðandi og verða gestir hvattir til að taka þátt með því að slaka á og njóta.

Sundlauganótt er hluti af Vetrarhátíð sem haldin er 7 – 10 febrúar í ár.

Sundlaugarnar sem taka þátt eru þessar.

Ásvallalaug, Hafnarfirði
Vesturbæjarlaug
Breiðholtslaug
Grafarvogslaug
Árbæjarlaug
Klébergslaug
Ásgarðslaug, Garðabæ
Salalaug, Kópavogi
Sundhöll Reykjavíkur
Lágafellslaug
Laugardalslaug

Hægt er að kynna sér dagskránna hérna og velja þar „sundlaugarnótt“ í reitnum „allir viðburðir“

Fleira til að skoða

Opnunartími Jólin 2017

Hér að neðan má sjá lista yfir opnunartímann jólahátíðina 2017 Landshluti Sundstaður 23.des 24.des 25.des 26.des 31.des 1.jan Þorláksmessa Aðf.dagur Jóladagur 2. í jólum Gamlársdagur