Opnunartímar um páska 2024

Search
Close this search box.

Laugarvatn Fontana

Laugarvatn Fontana er heilsulind sem nýtir jarðhitann á Laugarvatni. Þar er gufubað, sauna, laugar og svo aðgangur í Laugarvatnið sjálft.

Gufan er byggð yfir náttúrulegum hver en rimlagólfið hleypir gufu hversins beint inní gufuklefana. Hitastigið er þannig breytilegt eftir náttúrulegum kringumstæðum en frá 40°C til 50°C.

Saunan er sánabað að finnskri fyrirmynd. Þar er hitastigið á bilinu 80°C – 90°C en rakastigið er lægra en í gufubaðinu.

Laugarnar eru fjölbreytilegar og mismunandi heitar. Þar eru svæði til slökunar og hvíldar. Í suðurenda lauganna er svo heitur pottur.

Hægt er að ganga frá laugunum út á bryggju og vaða svo þaðan út í frískandi vatnið. Í vatninu eru heitar uppsprettur sem gerir það hlýrra við ströndina og kólnar svo þegar farið er lengra út í vatnið.

Afgreiðslutími

Opnunartími

Vetraropnun 2020:

  • Mánudaga til fimmtudaga:  Lokað
  • Föstudaga til sunnudaga:  12:00 – 21:00

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

01.06.2023-31.05.202401.06.2024-31.05.2025
Börn, 0 - 9 áraFrítt með fullorðnum*
Unglingar, 10 - 16 ára2.990 kr3.490 kr
Fullorðnir, 17 ára og eldri4.990 kr5.490 kr
Eldri borgarar / Öryrkjar2.990 kr3.490 kr
Handklæði til leigu1.000 kr1.000 kr
Sundföt til leigu1.000 kr1.000 kr
Baðsloppur til leigu1.500 kr1.500 kr

Staðsetning