Opnunartímar í maí og júní

Þorlákshöfn

Í Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar er 25 metra sundlaug, tveir pottar, vaðlaug, tvær vatnsrennibrautir og innsundlaug með fjölda vatnsleiktækja. Innilaugin er einkar barnvæn,aðeins 45 cm djúp og mjög vinsæl hjá yngstu kynslóðinni. Við laugina er vatnsgufa, tveir rúmgóðir búningsklefar og tveir útiklefar. Sér búningsaðstaða er fyrir fatlaða.

Á annarri hæð Íþróttamiðstöðvarinnar er  líkamsrækt seme r ágætlega tækjum búinn. Í líkamsræktinni eru tveir salir, tækjasalur og leikfimisalur. Einnig er búningsklefar og tveir saunaklefar. Á svölum líkamsræktarinnar eru þrír pottar, tveir heiti og einn kaldur.

Tjaldsvæði í nágrenninu

Þorlákshöfn

Afgreiðslutími

Innilaug lokar þann 17. apríl næstkomandi og verður lokuð í óákveðin tíma vegna viðhaldsvinnu.

Sumaropnun 1. júní til 31. ágúst

  • Mánudaga – föstudaga:  07:00 – 21:00
  • Laugar- og sunnudaga:  10:00 – 18:00

17 júní:  Lokað

Vetraropnun, 1. september til 31. maí

  • Virka daga:  07:00 – 21:00
  • Laugar – og sunnudaga:  10:00-17:00

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

* Frítt e fyrir börn að 10 ára aldri (miðast við árið sem einstaklingur verður 10 ára).
Aldraðir (67 ára og eldri) þurfa ekki að greiða fyrir sund.
Öryrkjar þurfa ekki að greiða fyrir sund, en þurfa að sýna kort.

2023Stakt gjald10 miðar30 miðarÁrskort
Börn, 10 - 18 ára*350 kr1.870 kr
Fullorðnir1.175 kr5.350 kr11.300 kr33.600 kr
Aldraðir og öryrkjar0 kr
SundfötHandklæðiSundföt, handkl & sund
Leiga815 kr815 kr1.985 kr
Sturta580 kr

Staðsetning