Opnunartímar í maí og júní

Sundlaugin Laugaskarði

„Sundlaugin var byggð í sjalfboðavinnu og var vatni hleypt í hana í júnímánuði árið 1938. Unmennafélag Ölfushrepps beitti sér hvað mest fyrir því að laugin var gerð og lögðu félagmenn fram mikla vinnu í verkið. Lárus Rist sundkappi flutti til Hveragerði árið 1936 og hann var mikill liðsauki og tók forystu við uppbyggingu laugarinnar og réði meðal annars um staðarvalið. Um tíma var laugin stærsta sundlaug landsins og íslenska landslðið í sundi æfði í lauginni allt til ársins 1966 þegar laugardalslaugin í Reykjavík kom til sögunnar.Auka upplýsingar

Upphaflega var laugin aðeins 25 metrar en er nú 50 metra löng og 12 metrar á breidd. Laugin er svokölluð gegnumrennslislaug og er hituð upp með jarðgufu sem tryggir eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins. Í lauginni er heit og grunn setlaug ásamt heitum potti með rafmagnsnuddi og svo er að finna þarna nátturulegt gufubað. Laugin er í fallegu umhverfi og góðu skjóli. Alltaf er gæslumaður á vakt og svo er einnig sjónvarpskerfi þar sem hægt er að fylgjast með og tryggja öruggi sundgesta eins vel eins og hægt er.

Hveragerðisbær annast rekstur og viðhald á sundlauginni“ – Fréttablaðið

Tjaldsvæði í nágrenninu

Hveragerði

Afgreiðslutími

Sumaropnun 15. maí til 14. sept

  • Mánudaga – föstudaga:  06:15- 21:30
  • Laugar- og sunnudaga:  09:00 – 19:00

Vetraropnun, 15. sept til 14. maí

  • Mánudaga til föstudaga:  06:45- 20:30
  • Laugar – og sunnudaga:  10:00-17:30

Frídagar

  • Sumardagurinn fyrsti:  10:00 – 17:30
  • 1. maí:  10:00 – 17:30
  • Uppstigningardagur:  09:00 – 19:00
  • Hvítasunnuhelgin (27, 28 og 29 maí):  09:00 – 19:00
  • 17. júní:  Lokað
  • Verslunarmannahelgin (5, 6 og 7 ágúst):  09:00 – 19:00

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

  • 67 ára og eldri fá frítt
  • Börn og ungmenni undir 18 ára búsett í Hveragerði fá frítt.
2023Stakt gjald10 miðar30 miðar1/2 árskortÁrskort
Börn 0 - 5 áraFrítt
Börn400 kr1.600 kr
Fullorðnir1.150 kr5.150 kr10.400 kr20.010 kr35.420 kr
SundfötHandklæði
Leiga950 kr750 kr
Sund, sundföt og handklæði2.300 kr

Staðsetning