Bolungarvík
- Höfðastígur, 415 Bolungarvík
Sundlaug
Í Íþróttamiðstöðinni Árbæ er inni sundlaug 8 x 16,66 m. Á útisvæði eru tveir heitir pottar annar 41°C heitur og hinn 39°C heitur með vatnsnuddi auk þess er á útisvæði vatnsrennibraut, kaldur pottur og rúmgóð vaðlaug með bunusvepp.
Í tengslum við sundlaug er afar notaleg baðstofa með Sauna og góðri hvíldaraðstöðu. Í íþróttamiðstöðinni er 22 x 28 metrar íþróttasalur og rúmgóður þreksalur vel búin æfingartækjum.
Reglubundin starfsemi Íþróttamiðstöðvarinnar utan almenningstíma er þjónusta við íþróttakennslu Grunnskóla Bolungarvíkur, og þjónusta við öflugt íþróttastarf og æskulýðstarf Ungmennafélags Bolungarvíkur, sem skipuleggur reglubundna þjálfun í sundi, knattspyrnu, körfuknattleik og fl.
Þá hefur Íþróttamiðstöðin á undanförnum árum tekið virkan þátt í ýmiskonar atburðum sem bæjarbúar hafa staðið fyrir á sviði íþróttamála s.s íþrótta-hátíðum og íþróttakeppnum, kynningarstarfsemi og listviðburðum í tengslum við ýmsa viðburði í bæjarfélaginu.
Íþróttamiðstöðin Árbær er MUSTERI VATNS OG VELLÍÐUNAR
Afgreiðslutími
Opnunartími
Sumaropnun
- Mánudaga – föstudaga: 07:00 – 22:00
- Laugar- og sunnudaga: 10:00 – 18:00
Vetraropnun, frá 1. september
- Mánudaga – föstudaga: 06:00 – 21:00
- Laugar – og sunnudaga: 10:00 – 18:00
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
2024 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | 6 mánaða kort | Árskort |
---|---|---|---|---|---|
Börn, 0 - 6 ára | 0 kr | ||||
Börn, 7 - 16 ára | 330 kr | 2.700 kr | 3.500 kr | ||
Fullorðnir | 1.350 kr | 8.300 kr | 18.000 kr | 13.500 kr | 23.000 kr |
Aldraðir og öryrkjar | 550 kr | 3.340 kr | |||
Öryrkjar | 550 kr | 3.400 kr | |||
Sundföt | Handklæði | ||||
Leiga | 830 kr | 830 kr | |||
Þreksalur + sund | 1.550 kr |