Sundlaug Akureyrar
- Þingvallastræti 21, 600 Akureyri

Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Á svæðinu er að finna tvær 25m útisundlaugar, fimm heita potta, þar af einn nuddpott, sólbaðssvæði, vaðlaug, eimbað, kalt ker og þrjár rennibrautir, þar á meðal lengstu vatnsrennibraut á Íslandi. Í stærri rennibrautirnar gildir 8 ára aldurstakmark.
Sundlaug Akureyrar nýtur mikilla vinsælda hjá heimamönnum og ferðamönnum.
Í öllum klefum eru læstir skápar og í boði eru bæði inni- og útiklefar, í inniklefum eru tölvulæstir skápar með númerakerfi og í útiklefum eru munaskápar með sams konar kerfi. Athugið að korthafar World Class fá frítt í sund aðeins þegar þeir nota búningsklefa World Class.
Öllum gestum er gert að þvo sér án sundfata áður en gengið er til laugar.
Aðgengi fyrir alla
Í Sundlaug Akureyrar er í boði einstaklingsklefi á 2. hæð byggingarinnar. Einstaklingsklefinn er aðgengilegur fyrir fatlaða og lyfta er á milli hæða. Í klefanum eru læstir skápar, hreyfanlegur bekkur og handsturta með stuðningshandfangi. Stuðningshandföng eru einnig við klósett.
Einstaklingsklefinn er opinn öllum sem um hann biðja.
Segllyfta er í boði í Sundlaug Akureyrar og einnig stólalyfta að innilaug, báðum útilaugunum og stórum heitum potti sem er 38°C.
Tjaldsvæði í nágrenninu
Afgreiðslutími
Sumaropnun 3. júní til 20. ágúst 2023
- Mánudaga – föstudaga: 06:45 – 21:00
- Laugardaga: 08:00 – 21:00
- Sunnudaga: 08:00 – 19:30
Vetraropnun, 23. ágúst 2022 til 2. júní 2023
- Mánudaga – föstudaga: 06:45 – 21:00
- Laugardaga: 09:00 – 19:00
- Sunnudaga: 09:00 – 19:00
Afgreiðslutími um páska
- Pálmasunnudagur 09:00 – 19:00
- Skírdagur 09:00 – 20:00
- Föstudagurinn Langi 09:00 – 20:00
- Laugardagur fyrir Páska 09:00 – 20:00
- Páskadagur 09:00 – 20:00
- Annar í Páskum 09:00 – 19:00
Aðrir hátíðisdagar
- Sumardagurinn fyrsti 09:00 – 19:00
- 1. maí Baráttudagur verkalýðsins Lokað
- Uppstigningardagur 09:00 – 19:00
- Hvítasunnudagur 09:00 – 19:00
- Annar í Hvítasunnu 09:00 – 19:00
- 17. júní Þjóðhátíðardagurinn Lokað
- Frídagur Verslunarmanna 08:00 – 19:30
Jól og áramót 2023 – 2024
- 23. des Þorláksmessa 06:45 – 18:00
- 24. des Aðfangadagur Jóla 09:00 – 12:00
- 25. des Jóladagur Lokað
- 26. des Annar í Jólum 11:00 – 19:00
- 27. des 06:45 – 21:00
- 28. des 06:45 – 21:00
- 29. des 06:00 – 21:00
- 30. des 06:45 – 21:00
- 31. des Gamlársdagur 08:45 – 12:00
- 1. jan Nýársdagur Lokað
- 2. jan 06:45 – 21:00
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
Öryrkjar fá frítt í sund gegn framvísun gilds örorkuskírteinis.
Börn byrja á greiða 1. Júní árið sem þau verða 6 ára.
Hver áfylling 10 miða korts gildir í 24 mánuði.
Hver áfylling 30 miða korts gildir í 36 mánuði.
Rafrænt handhafakort fæst endurgreitt þegar því er skilað.
Árskort keypt í Sundlaug Akureyrar gilda líka í Glerárlaug, Sundlaugina í Hrísey og Sundlaugina í Grímsey. Rafræn skiptakort gilda bara í Sundlaug Akureyrar.
2023 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | 3 mánaða kort | 6 mánaða kort | Árskort |
---|---|---|---|---|---|---|
Börn, 0 - 5 ára | 0 kr | |||||
Börn, 6 - 17 ára | 290 kr | 2.000 kr | 2.950 kr | |||
Fullorðnir | 1.200 kr | 6.050 kr | 15.400 kr | 16.100 kr | 27.900 kr | 39.900 kr |
Aldraðir | 300 kr | 6.600 kr | ||||
Öryrkjar | Frítt | |||||
Sundföt | Handklæði | Handklæði og sundföt | ||||
Leiga | 900 kr | 1.000 kr | 1.600 kr | |||
Sundföt, handklæði og sund | 2.250 kr | |||||
Útgáfa á rafrænu handhafakorti | 1.100 kr | 1.100 kr | 1.100 kr | 1.100 kr | 1.100 kr | |
Árskort skóla | 18.300 kr | |||||
Sund og skíðakort (gildir til 31.10) | 70.400 kr |