Suðurbæjarlaug
- Hringbraut 77, 220 Hafnarfjörður
Í Suðurbæjarlaug er 12,5 x 25 metra útisundlaug. Innandyra er sérhönnuð kennslulaug sem einnig er góð barnalaug. Úti eru þrír heitir pottar, vatnsgufa, bunusveppur, tvær vatnsrennibrautir og tvö köld kör með mismunandi hitastigi. Vinsæll göngustígur liggur um sundlaugargarðinn. Sérstakir búningsklefar með gufubaði eru til staðar fyrir bæði kynin við hlið hefðbundinna búningsklefa. Á útisvæði eru einnig búningsklefar undir berum himni.
Í kjallara Suðurbæjarlaugar er Gym Heilsa heilsuræktarstöð með aðstöðu. Í sundlauginni er hefðbundið skólasund, sundæfingar SH, ungbarnasundstímar, vatnsleikfimi og tímar í jóga. Í húsnæði laugarinnar starfar jafnframt nuddari.
Afgreiðslutími
Suðurbæjarlaug verður lokuð frá og með mánudeginum 14. ágúst til og með miðvikudagsins 18. ágúst vegna viðhalds og endurbóta.
Afgreiðslutími
- Mánudaga – fimmtudaga: 06:30 – 22:00
- Föstudaga: 06:30 – 20:00
- Laugardaga: 08:00 – 18:00
- Sunnudaga: 08:00 – 17:00
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
2023 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | 6 mán kort | Árskort |
---|---|---|---|---|---|
Börn, 0 - 17 ára | 0 kr | ||||
Fullorðnir | 1.100 kr | 4.700 kr | 12.700 kr | 18.400 kr | 32.500 kr |
Aldraðir og öryrkjar | 0 kr | ||||
Gufubað | 1.250 kr | 5.500 kr | 22.000 kr | 38.600 kr | |
Sundföt | Handklæði | Sundf. & handkl. | |||
Leiga | 800 kr | 800 kr | 1.300 kr |