Klébergslaug
- Kollagrund 4, 116 Reykjavík
Sundlaug

Klébergslaug er í íþróttamiðstöðinni á Kjalarnesi. Þetta er sundlaug í alfaraleið og í dásamlegu umhverfi við sundin blá. Hún stendur við sjávarbakkann með útsýni út á sjóinn og skammt frá er nýleg sjósundsaðstaða. Verið velkomin í rólegt umhverfi í sveitasælunni á Kjalarnesi.
Afgreiðslutími
Laugin er lokuð vegna viðhaldsvinnu frá 24. ágúst til 30. ágúst
Opnunartími
- Mánudaga – fimmtudaga: 09:00- 22:00
- Föstudaga: 09:00 – 19:00
- Laugar – og sunnudaga: 11:00-18:00
Sundleikfimi:
- Miðvikudaga: 14:00 (úti)
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
* Börn byrja að greiða 1. ágúst árið sem þau verða 10 ára.
** Inneign 10 skipta korta gildir í 4 ár frá kaupum – skiptakort gilda ekki fyrir hópa.
*** 12 mánaðar binding, mánaðargjald er 2.833 kr pr fullorðin og 333 kr fyrir 67 ára og eldri.
Þar sem Reykjavíkurkortið er aðgangskort er framvísun kortsins nauðsynleg til notkunar. Ekki er mögulegt að óska eftir aðgangi með öllum leiðum, s.s. uppflettingu á kennitölu í afgreiðslu nema gegn framvísan löggildra skilríkja. Aðgangskort er forsenda virkni áskrifta/inneigna.
Umönnunaraðili barna fær frítt með gegn framvísun umönnunarskírteinis frá TR.
| 2026 | Stakt gjald | 10 miðar** | Árskort*** |
|---|---|---|---|
| Börn, 0 - 9 ára | 0 kr | ||
| Ungmenni, 10 - 17 ára | 400 kr * | 1.450 kr | 2.000 kr |
| Fullorðnir | 1.500 kr | 7.000 kr | 34.000 kr |
| 67 ára og eldri | 4.000 kr | ||
| Handhafar TR – Örorkuskírteinis | 0 kr | ||
| Sundföt | Handklæði | ||
| Leiga | 1.270 kr | 860 kr | |
| Sund, handklæði og sundföt | 2.700 kr | ||
| Fullorðnir | |||
| útg. á rafr. handhafakorti | 1.000 kr | ||
| Brautarleiga v. kennslu. | 8.150 kr |