Opnunartímar um páska 2024

Íþróttamiðstöðin Búðardal

Sundlaug

Í hjarta Búðardals er að finna nýja og glæsilega íþróttamiðstöð þar sem hægt er að eiga góðar stundir, hvort sem markmiðið er slökun, hreyfing eða leikur.
Í miðstöðinni er að finna 25 metra útisundlaug, heita potta, vaðlaug, sauna og kalt ker. Útsýnið frá sundlauginni út á Hvammsfjörð er einstakt sem gerir miðstöðina fullkominn áningarstað fyrir þá sem vilja njóta.
Vatnið í laugina kemur úr borholu í Reykjadal í Dölum og sveiflast hitastig sundlaugar frá 28 til 30°C á meðan heitu pottarnir halda notalegum hita á bilinu 38 til 40°C og vaðlaug um 35°C.
Einnig er hægt að kaupa sér aðgang að vel útbúnum líkamsræktarsal, fyrir þá sem vilja æfa í þægilegri aðstöðu eða þá sem vilja ekki missa úr æfingu á ferð um landið. Þá eru reglulegar og fjölbreyttar æfingar í íþróttasalnum á vegum íþróttafélaga og annarra hópa, fyrir íbúa á öllum aldri.
Íþróttamiðstöðin var tekin í notkun 28. febrúar 2026. Staðsetning hennar er einstaklega hentug – örstutt er í alla helstu þjónustu, hvort sem það er verslun, veitingastaðir, tjaldsvæði eða verkstæði.

Afgreiðslutími

Allt árið

  • Mánudaga – föstudaga:  07:00 – 21:00
  • Laugardaga – sunnudaga:  10:00 – 16:00

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

  • Bæði 10 og 30 miða kort gilda í tvö ár frá útgáfu þess.
  • 67 ára og eldri með lögheimili í sveitarfélaginu fá heilsukort án endurgjalds í nafni “gott að eldast í Dölum”. Kortið
    veitir aðgang í sund og líkamsrækt.
  • Afsláttur fyrir 67 ára og eldri gildir einnig fyrir einstaklinga á endurhæfinga og örorkulífeyri gegn framvísun örorkuskírteini
Stakt gjald10 miða kort30 miða kortÁrskort
Börn, 10 - 18 ára400 kr3.000 kr7.800 kr10.000 kr
Fullorðnir1.400 kr9.800 kr25.200 kr35.000 kr
67 ára og eldri700 kr5.250 kr13.650 kr17.500 kr
Sturta800 kr
HandklæðiSundföt
Til leigu850 kr1.250 kr

Staðsetning