Íþróttamiðstöðin Búðardal
- Miðbraut 8b, 370 Búðardal
Sundlaug

Í hjarta Búðardals er að finna nýja og glæsilega íþróttamiðstöð þar sem hægt er að eiga góðar stundir, hvort sem markmiðið er slökun, hreyfing eða leikur.
Í miðstöðinni er að finna 25 metra útisundlaug, heita potta, vaðlaug, sauna og kalt ker. Útsýnið frá sundlauginni út á Hvammsfjörð er einstakt sem gerir miðstöðina fullkominn áningarstað fyrir þá sem vilja njóta.
Vatnið í laugina kemur úr borholu í Reykjadal í Dölum og sveiflast hitastig sundlaugar frá 28 til 30°C á meðan heitu pottarnir halda notalegum hita á bilinu 38 til 40°C og vaðlaug um 35°C.
Einnig er hægt að kaupa sér aðgang að vel útbúnum líkamsræktarsal, fyrir þá sem vilja æfa í þægilegri aðstöðu eða þá sem vilja ekki missa úr æfingu á ferð um landið. Þá eru reglulegar og fjölbreyttar æfingar í íþróttasalnum á vegum íþróttafélaga og annarra hópa, fyrir íbúa á öllum aldri.
Íþróttamiðstöðin var tekin í notkun 28. febrúar 2026. Staðsetning hennar er einstaklega hentug – örstutt er í alla helstu þjónustu, hvort sem það er verslun, veitingastaðir, tjaldsvæði eða verkstæði.
Afgreiðslutími
Allt árið
- Mánudaga – föstudaga: 07:00 – 21:00
- Laugardaga – sunnudaga: 10:00 – 16:00
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
- Bæði 10 og 30 miða kort gilda í tvö ár frá útgáfu þess.
- 67 ára og eldri með lögheimili í sveitarfélaginu fá heilsukort án endurgjalds í nafni “gott að eldast í Dölum”. Kortið
veitir aðgang í sund og líkamsrækt. - Afsláttur fyrir 67 ára og eldri gildir einnig fyrir einstaklinga á endurhæfinga og örorkulífeyri gegn framvísun örorkuskírteini
| Stakt gjald | 10 miða kort | 30 miða kort | Árskort | |
|---|---|---|---|---|
| Börn, 10 - 18 ára | 400 kr | 3.000 kr | 7.800 kr | 10.000 kr |
| Fullorðnir | 1.400 kr | 9.800 kr | 25.200 kr | 35.000 kr |
| 67 ára og eldri | 700 kr | 5.250 kr | 13.650 kr | 17.500 kr |
| Sturta | 800 kr | |||
| Handklæði | Sundföt | |||
| Til leigu | 850 kr | 1.250 kr | ||