Mánudaginn 27. júní hefjast viðhaldsframkvæmdir við Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug. Í Ásvallalaug verður 50 metra laugin tæmd og unnið að flísaviðgerðum. Áætla að þeim verði lokið um miðjan júlí.
Í Suðurbæjarlaug verða mun umfangsmeiri viðhalds – og nýframkvæmdir og því verður laugin alveg lokuð. Stefnt er á að opna laugina aftur í þrepum um miðjan ágúst.
Vegna þessara lokana verður Sundhöll Hafnarfjarðar opin um helgar. Opið verður laugardaga frá 08:00 – 18:00 og sunnudaga frá 08:00 – 20:00.