Opnunartímar um páska 2024

Search
Close this search box.

Vök Baths

Baðlón

Vök Baths er staðsett við Urriðavatn í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá Egilsstöðum á Austurlandi. Fljótandi laugar sem renna saman við náttúruna allt í kring, látlaus og falleg hönnun og hreinasta jarðhitavatn á Íslandi sjá til þess að þú getur slakað á og endurnært líkama og sál.

Hjá Vök Baths getur öll fjölskyldan notið sín saman í slökun og gleði enda býður aðstaðan upp á fjölbreytta möguleika.

Ef þið viljið hressandi sundsprett í köldu Urriðavatni, notalega samverustund í heitu laugunum með góðan drykk, viljið njóta útsýnis yfir vatnið og endurnýja tengsl ykkar við náttúruna, eða leysa gátur lífsins í eimbaðinu, þá er Vök Baths rétti staðurinn fyrir þig og fjölskylduna.

Afgreiðslutími

Vetraropnun, 15. sept – 14. júní

  • Alla daga:  12:00 – 22:00*

Sumaropnun, 15. júní – 14. sept

  • Alla daga:  10:00 – 23:00*

Hátíðisdagar og almennir frídagar

  • Aðfangadagur:  10:00 – 16:00
  • Jóladagur:  10:00 – 16:00
  • Gamlársdagur:  10:00 – 16:00
  • Nýársdagur:  10:00 – 16:00

* Gestir geta notið baðanna þar til 15 mín fyrir auglýstan lokunartíma.

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

Innifalið í aðgangi er jurtadrykkur á tebar sem hægt er að njóta fyrir eða eftir böðin.

* Deila skáp með fylgdaraðila og nota kúta á meðan á heimsókn stendur. Kúta er hægt að fá lánaða hjá okkur.

2024Aðgangur
Börn, 0 - 5 ára*Frítt
Börn, 6 - 15 ára3.390 kr
Fullorðnir, 16 ára og eldri6.990 kr
HandklæðiBaðsloppurSundföt
Til leigu1.390 kr1.990 kr1.390 kr

Staðsetning