Opnunartímar um páska 2024

Sundhöll Selfoss

Sundlaug

Sundhöll Selfoss er staðsett í miðbæjarkjarna Selfoss í göngufæri frá helstu verslun og þjónustu. Við sundlaugina er næg bílastæði allt í kring fyrir gesti. Í Sundhöll Selfoss er barna- og 18 metra innilaug, 25 metra útilaug, barnalaug með þremur rennibrautum, vaðlaug, vatnsgufa, sauna og heitir og kaldir pottar. Fjórir búningsklefar eru við sundhöllina, tveir inniklefar og tveir útiklefar, sér búningsaðstaða er fyrir fatlaða í inni- og útiklefum. Ný viðbygging var opnuð sumarið 2015 sem gjörbylti allri aðstöðu við Sundhöllina en bætt var við barnalaug inni, nýrri afgreiðslu og stærri búningsklefum.

Í sundhöll Selfoss er gott aðgengi fyrir fatlaða og sérklefi sem hentar fyrir fólk í hjólastól.

Heilsuræktarstöðin World Class hefur aðstöðu á efri hæð Sundhallarinnar en sameiginleg afgreiðsla er fyrir hana og sundlaugina. Sundhöll Selfoss er ein af stærstu sundlaugum á Suðurlandi en árlega koma um 200 þúsund gestir í laugina.

Tjaldsvæði í nágrenninu

Gesthús  – Selfossi

Afgreiðslutími

Opnunartími

  • Mánudaga – fimmtudaga:  06:30 – 21:00
  • Föstudaga:  06:30 – 19:00
  • Laugar- og sunnudaga:  09:00 – 18:00

Hvítasunnudagur:  Lokað
Annar í Hvítasunnu:  10:00 – 17:00
Frídagur verslunarmanna:  Lokað

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

*Börn búsett í Árborg fá gefins árskort.

 

2025Stakt gjald10 miðar30 miðarÁrskort
Börn, yngri en 10 ára0 kr
Börn, 10-17 ára*350 kr1.550 kr4.100 kr
Fullorðnir1.750 kr6.150 kr12.300 kr39.000 kr
Aldraðir460 kr2.560 kr6.200 kr8.200 kr
Öryrkjar0 kr
SundfötHandklæði
Leiga1.100 kr1.100 kr
Sundföt, handklæði og sund2.560 kr

Staðsetning