Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar – Ólafsfirði
- Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði
Sundlaug

Við Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Ólafsfirði er sundlaug 8 x25 metrar, 2 heitir pottar 38° og 40°heitir og er annar m/nuddi.
Fosslaug og barnalaug eru vinsælar og síðast en ekki síst rennibrautirnar tvær. Önnur er snákur sem er 3,5 metrar en sú stærri er 52,5 metrar og er svarthol. Hún er mjög vinsæl
Löglegt íþróttahús er á staðnum og ágætis tækjasalur.
Sundlaug Ólafsfjarðar var byggð í sjálfboðavinnu félaga í Íþróttafélaginu Sameiningu á árunum 1943 – 1945 og var síðan afhent Ólafsfjarðarbæ og hún vígð sunnudaginn 1. júlí 1945. Fyrst til að stinga sér í sundlaugina var Freydís Bernharðsdóttir þá 10 ára. Árið 2010 var svæðinu gjörbreitt og nú eru komnir 2 pottar, barnalaug, fosslaug.52,5 metra rennibraut og lítil barnarennibraut. Laugin sjálf er 8 x 25 metrar.
Tjaldsvæði í nágrenninu
Afgreiðslutími
Vetraropnun.
- Mánudaga: 06:30 – 08:10 og 13:10 – 19:45
- Þriðjudaga: 06:30 – 19:45
- Miðvikudaga: 06:30 – 08:10 og 09:10 – 19:45
- Fimmtudaga: 06:30 – 19:45
- Föstudaga: 06:30 – 11:00 og 13:10 – 19:45
- Laugardaga: 10:00 – 14:00
- Sunnudaga: 14:00 – 18:00
Sumaropnun
- Mánudaga – föstudaga: 06:30 – 19:00
- Laugar- og sunnudaga: 10:00 – 18:00
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
*Líkamsrækt og sund er gjaldfrjáls fyrir öryrkja gegn framvísun örorkuskírteinis og 67 ára og eldri íbúa Fjallabyggðar.
| 2026 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | Árskort | Hjónakort | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Börn, 10 - 15 ára | 520 kr | 3.170 kr | 5.400 kr | 6.200 kr | ||
| Fullorðnir | 1.090 kr | 7.500 kr | 16.850 kr | 28.350 kr | 44.500 kr | |
| Aldraðir og öryrkjar | 520 kr | 3.170 kr | 5.400 kr | 5.200 kr | ||
| Sundföt | Handklæði | |||||
| Leiga | 1.090 kr | 1.090 kr | ||||
| Sundföt, handklæði og aðgangur | 3.150 kr | |||||
| Sturta | 1.090 kr | |||||
| Tækjasalur | Stakt gjald | 1 mán kort | 3. mán kort | 6. mán kort | Árskort | Hjónakort |
| Fullorðnir | 1.870 kr | 12.115 kr | 33.750 kr | 44.700 kr | 71.650 kr | 99.890 kr |
| Aldraðir og öryrkjar | 1.560 kr | 9.050 kr | 21.850 kr | 30.800 kr | 45.000 kr | |
| 1/1 salur | 1/2 salur | Tennis | Blakvöllur | Badmintonvöllur | ||
| Íþróttasalur | 10.700 kr | 6.750 kr | 6.750 kr | 6.750 kr | 3.950 kr |