Sundlaugin á Hellu er 25 x 11 metrar og er lögleg sem keppnislaug. Við laugina eru 5 heitir pottar; 1 nuddpottur, 2 heitir pottar og 2 vaðlaugar. Við laugina eru einnig 3 rennibrautir; 2 stórar og 1 lítil. Eimbað er við laugina og sólbaðsaðstaða. Sundlaugin er sambyggð við íþróttahúsið og myndar skemmtilega heild fyrir margvíslegar íþróttagreinar.
Tjaldsvæði í nágrenninu
Afgreiðslutími
Vetraropnun, 21. ágúst til 25. maí
- Virka daga: 06:30 – 21:00
- Laugar – og sunnudaga: 10:00-16:00
Rauðir dagar: 10:00 – 16:00
Lokað jóladag, annan í jólum og nýársdag.
Sumaropnun 25. maí til 25. ágúst
- Mánudaga – föstudaga: 06:30 – 21:00
- Laugar- og sunnudaga: 10:00 – 19:00
Myndir
[gallery_bank type="images" format="masonry" title="true" desc="false" responsive="true" display="all" sort_by="random" animation_effect="bounce" album_title="false" album_id="33"]
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
Börn og ungmenni yngri en 18 ára með lögheimili eða stunda nám í Rangárþingi ytra og Ásahrepp fá frítt í sund á Hellu og Laugalandi.
Aldraðir og öryrkjar með lögheimili í Rangárþingi ytra og Ásahrepp fá frítt í sund á Hellu og Laugalandi.
Gildir 2023 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | Árskort |
---|---|---|---|---|
Börn, 8 - 15 ára | 330 kr | 3.000 kr | ||
Fullorðnir | 1.200 kr | 6.400 kr | 12.200 kr | 35.000 kr |
Aldraðir og öryrkjar | 580 kr | 3.000 kr | 11.700 kr | |
Sundföt | Handklæði | |||
Leiga | 1.000 kr | 1.000 kr |