Ásgarðslaug er útisundlaug með heitum pottum og barnalaug. Í barnalauginni er lítil rennibraut.
Laugin var nýlega öll endurnýjuð og voru settar upp nýjar útisturtur auk þess sem nýir heitir pottar voru gerðir. Þá er einnig kaldavatnspottur og vað – og setlaug.
Ofan í sundlaugina er góð lyfta fyrir fólk í hjólastólum frá Pool Pod.
Afgreiðslutími
Afgreiðslutími
- Mánudaga til föstudaga: 06:30 – 22:00
- Laugardaga og sunnudaga: 08:00 – 18:00
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
Varðandi aðra þætti gjaldskyldu:
- Börn 0-17 ára eru ekki gjaldskyld, miðað er við daginn sem þau verða 18 ára
- Gjaldskylda fellur niður við 67 ára aldur miðað við afmælisdag, framvísa verður persónuskilríkjum og kaupa rafrænt Garðakort.
- Öryrkjar eru ekki gjaldskyldir gegn framvísun skírteinis sem gefið er út af Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra í Reykjavík, sem skal endurnýjað árlega.
- Skírteini Tryggingastofnunar ríkisins, grænt vegna varanlegrar örorku, gult vegna tímabundinnar örorku og blátt skírteini Blindrafélagsins, gefa einnig gjaldfrjálsan aðgang.
- Allir sem eru með gjaldfrían aðgang verða að vera með Garðakortið til að hlaða inn aðgangsheimild. Þannig getur hver og einn afgreitt sig sjálfur.
Annað:
Hætt er að selja aðgang hálfri klukkustund fyrir lokun. Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sundstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Frá 1. júní ár hvert geta börn sem verða 10 ára á árinu farið í sund án fylgdarmanns (eftir 4. bekk) enda séu þau orðin synd.
2023 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | 6 mánaða kort | Árskort |
---|---|---|---|---|---|
Börn, 0 - 17 ára | 0 kr | ||||
Fullorðnir | 830 kr | 5.100 kr | 10.500 kr | 22.000 kr | 41.600 kr |
67 ára og eldri | 0 kr | ||||
Sundföt | Handklæði | ||||
Leiga | 650 kr | 650 kr | |||
CTS-kort "Garðakortið" | 900 kr |