Sundhöll Selfoss
Tryggvagata 15, 800 Selfossi
480 1960
Tryggvagata 15, 800 Selfossi
Afgreiðslutími
Sumaropnun, 1. júní til 14. ágúst
- Mánudaga – föstudaga: 06:30 – 21:30
- Laugar- og sunnudaga: 09:00 – 19:00
Vetraropnun, 15. ágúst til 31. maí
- Mánudaga – föstudaga: 06:30 – 21:30
- Laugar- og sunnudaga: 09:00 – 18:00
Gjaldskrá - Verð
Gildir frá 1. janúar 2022 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | Árskort |
---|---|---|---|---|
Börn, 10-17 ára* | 160 kr | 1.200 kr | 3.400 | |
Fullorðnir | 1.100 kr | 4.400 kr | 8.800 kr | 30.500 kr |
Aldraðir | 200 kr** | |||
Öryrkjar | 0 kr | |||
Sundföt | Handklæði | |||
Leiga | 850 kr | 850 kr | ||
Sundföt, handklæði og sund | 1.750 kr |
*Börn búsett í Árborg fá gefins árskort.
**67 ára og eldri sem búa í Árborg fá frítt.
Börn búsett í Árborg fá gefins árskort.
Um sundlaugina
Sundhöll Selfoss er staðsett í miðbæjarkjarna Selfoss í göngufæri frá helstu verslun og þjónustu. Við sundlaugina er næg bílastæði allt í kring fyrir gesti. Í Sundhöll Selfoss er barna- og 18 metra innilaug, 25 metra útilaug, barnalaug með þremur rennibrautum, vaðlaug, vatnsgufa, sauna og heitir og kaldir pottar. Fjórir búningsklefar eru við sundhöllina, tveir inniklefar og tveir útiklefar, sér búningsaðstaða er fyrir fatlaða í inni- og útiklefum. Ný viðbygging var opnuð sumarið 2015 sem gjörbylti allri aðstöðu við Sundhöllina en bætt var við barnalaug inni, nýrri afgreiðslu og stærri búningsklefum.
Í sundhöll Selfoss er gott aðgengi fyrir fatlaða og sérklefi sem hentar fyrir fólk í hjólastól.
Heilsuræktarstöðin World Class hefur aðstöðu á efri hæð Sundhallarinnar en sameiginleg afgreiðsla er fyrir hana og sundlaugina. Sundhöll Selfoss er ein af stærstu sundlaugum á Suðurlandi en árlega koma um 200 þúsund gestir í laugina.
Tjaldsvæði í nágrenninu