Opnunartímar um páska 2024

Search
Close this search box.

Íþróttamiðstöðin Borgarnesi

Sundlaug

Sundaðstaða: 25 x 12,5 m útisundlaug, 3 vatnsrennibrautir, barnavaðlaug, 2 heitir pottar, annar með sérstöku kraftnuddi, iðulaug með frábæru nuddi, 12,5 x 8 m innilaug, eimbað beint úr Deildartunguhver, sánabað og góð sólbaðsaðstaða.

Líkamsrækt: Þreksalur til líkamsræktar. Þolfimisalur, íþróttasalur, Egoline ljósabekkur. Panta þarf sérstaklega tíma í sánabaðsklefa tímanlega fyrir hópa.

Aðstaða fyrir fatlaða: Sérstakir búningsklefar eru fyrir fatlaða eða þá sem vilja vera með sér búningsaðstöðu og lyfta er á milli allra hæða.

Almenningsíþróttir: Sérstök tilboð standa almenningi til boða í íþróttamiðstöðinni. Tímatafla Íþróttamiðstöðvarinnar þar sem fram koma æfingatímar einstakra deilda er hér til skoðunar. Nánari upplýsingar gefa formenn viðkomandi deilda og félaga.

Starfsmenn: 9 stöðugildi eru við íþróttamiðstöðina. Auk þess er íþróttafræðingur í fullu starfi sem sinnir ókeypis tilsögn í þreksal fyrir gesti okkar og sér auk um að leiðbeina í vatnsleikfimi og ungbarnasundi. Hægt er að fá einkaþjálfara í þreksalnum óski menn þess sérstaklega geng gjaldi. Um 160.000 gestir koma í íþróttamannvirkið árlega.

Tjaldsvæði í nágrenninu

Borgarnes

Afgreiðslutími

Opnunartími

Innisundlaug

  • Mánudaga – föstudaga:  06:30 – 22:00
  • Laugar- og sunnudaga:  09:00 – 18:00 (einnig aðra frídaga)

Útilaug

  • Mánudaga – föstudaga:  06:30 – 22:00
  • Laugar- og sunnudaga:  09:00 – 18:00 (einnig aðra frídaga)

1. maí Verkalýðsdagurinn lokað
Hvítasunnudag opið frá 9-18
Annar í hvítasunnu opið frá 9-18
17. júní Lýðveldisdagurinn, lokað

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

Börn byrja að borga 1. júní árið sem þau verða 11 ára og mega fara ein í sund.

2024Stakt gjald
Börn, 0 - 10 ára0 kr
Börn, 11- 15 ára390 kr
Fullorðnir1.240 kr
Aldraðir og öryrkjar390 kr

Staðsetning