Vegna viðhaldsvinnu þarf að loka Laugardalslaug tímabundið. Áætlaður framkvæmdatími er tvær vikur og verður sundlauginni lokað frá Þriðjudeginum 26. september. Stefnt er að því að opna heita potta eins fljótt og aðstæður leyfa. Skólasund og sundæfingar helst óbreytt.
Samkvæmt verkáætlun tekur verkefnið tvær vikur en óvissuþættir í verkingu geta haft áhrif á framkvæmdatíma. Upplýsingar verða birtar reglulega á Facebooksíðu Laugardalslaugar.
UPPFÆRT: Opnun tefst um viku, stefnt er á að opna 17. október.