Opnunartímar um páska 2024

Sundlaugasumar 2026

Deildu færslunni

Fjölbreyttir menningarviðburðir fram undan í sundlaugum landsins

Í kjölfar þess að íslensk sundlaugamenning var í desember síðastliðnum skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf heims verða á næstunni haldnir fjölbreyttir menningarviðburðir í sundlaugum víðs vegar um landið.

Þjóðminjasafn Íslands auglýsti, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, eftir umsóknum um styrki til slíkra verkefna. Markmiðið er að efla sundlaugarnar sem vettvang menningar, samfélags og sköpunar.

Verkefnin sem hlutu styrk endurspegla mikla fjölbreytni og frumleika. Gestir geta meðal annars átt von á tónlistarflutningi, gjörningum, fræðsluviðburðum og samfélagsverkefnum.

Meðal viðburða sem fyrirhugaðir eru má nefna sundsalsa, sundkeppni í sögulegum vaðmálsklæðnaði, kórasöng, sundsirkus og fljótandi kokteilkvöld þar sem boðið verður upp á kokteila skreytta ætum blómum.

Viðburðirnir undirstrika að íslenskar sundlaugar eru ekki aðeins staður til sundiðkunar og slökunar heldur einnig mikilvægur vettvangur menningar, samveru og samfélags um allt land.

Hér að neðan er dagskráin en auk þess má sjá nánari upplýsingar hérna.

Fleira til að skoða

Opnunartími Jólin 2017

Hér að neðan má sjá lista yfir opnunartímann jólahátíðina 2017 Landshluti Sundstaður 23.des 24.des 25.des 26.des 31.des 1.jan Þorláksmessa Aðf.dagur Jóladagur 2. í jólum Gamlársdagur