Opnunartímar um páska 2024

Search
Close this search box.

Ylströndin, Nauthólsvík

Baðlón

Ylströndin í Nauthólsvík er manngerð strönd með heitum potti, upphitað sjávarlón og vaðlaug. Ylströndin hefur fest sig í sessi sem paradís í borgarlandinu og á góðum sumardögum flykkjast innlendir sem erlendir gestir á ylströndina.

Aðstaðan er mjög góð en þar er þjónustumiðstöð með búnings – og sturtuaðstöðu. Þar er einnig veitingasala og grillaðstaða. Fyrir framan þjónustumiðstöðina er svo löng setlaug.

Hitastig:

  • Setlaug;  38°C
  • Heitur pottur í sjávarmálinu:  30 – 39°C
  • Sjávarlón innan grjótgarða:  15 – 19°C (eingöngu upphitað á opnunartíma yfir sumarmánuði)

Afgreiðslutími

Opnunartími, 19. ágúst – 14. maí:

  • Mánudaga:  Lokað
  • Þriðjudaga – föstudaga:  11:00 – 19:00
  • Laugardaga: 10:00 – 16:00
  • Sunnudaga: Lokað

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

2024Stakt skipti10 tíma kort20 tíma kort6 mán. kortÁrskort
Verð890 kr5.510 kr10.040 kr11.560 kr21.210 kr
HandklæðiSundföt
Leiga800 kr1.190 kr

Staðsetning