Guðlaug
- Langisandur, 300 Akranes
Náttúrulaug
Á Langasandi er hægt að baða sig í sjónum og njóta útsýnisins í Guðlaugu sem er heit laug staðsett í grjótgarðinum á Langasandi.
Guðlaug er á þremur hæðum en þriðja hæðin næst áhorfendastúku er útsýnispallur, þar undir á annarri hæð er heit setlaug og sturtur ásamt tækjarými og á fyrstu hæð er grunn vaðlaug. Á milli hæðanna eru tröppur sem einnig mynda tengingu á mill bakkans og fjörunnar. Guðlaug er skilgreind sem náttúrulaug/afþreyingarlaug sem er opin allt árið um kring. Búningsklefar eru á staðnum og útisturtur. Hitastig laugar er 39°c
Afgreiðslutími
Vetraropnun, 15. okt til 30. apríl
- Virkir dagar: 16:00 – 20:00
- Helgar: 10:00- 18:00
Sumaropnun, 1. maí til 14. okt
- Virkir dagar: 12:00 – 20:00
- Helgar: 10:00 – 18:00
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
Frítt gegn framvísun árskorts í Jaðarsbakkalaug
2024 | Stakur miði |
---|---|
17 ára og yngri | Frítt |
18 ára og eldri | 2.500 kr |
Öryrkjar og eldri borgarar | 1.250 kr |