Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
- Hrafnagilsskóla, 601 Eyjafirði
Sundlaug
Í sundlaug Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar er gott aðgengi fyrir fatlaða einstaklinga. Hægt er að fá einkaklefa, sturtustóll er til staðar og lyftur eru í pottinn og sundlaugina. Möguleiki er á að opna hurð að búningsklefa sem eykur pláss og auðveldar aðgengi fyrir hjólastóla. Að auki er rampur að sundlauginni sem auðveldar einstaklingum í hjólastól aðgengi.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar við Hrafnagilsskóla var tekinn í notkun í janúar 2007. Sundlaugin sjálf er 10×25 metrar og við hana eru heitur pottur, vaðlaug, stór rennibraut og eimbað. Hitinn í lauginni sjálfri er um það bil 30° og er þessvegna tilvalinn fyrir barnafólk.
Sundlaugin er staðsett við Hrafnagilsskóla sem að er í 10 km sunnan við Akureyri. Við hliðina á sundlauginni er Tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar. Mjög veðursælt.
Tjaldsvæði í nágrenninu
Afgreiðslutími
Vetraropnun, frá 24. ágúst
- Mánudaga – fimmtudaga: 06:30 – 08:00 og 14:00 – 22:00
- Föstudaga: 06:30 – 08:00 og 14:00 – 19:00
- Laugar – og sunnudaga: 10:00 -19:00
Sumaropnun
- Virka daga: 06:30 – 22:00
- Helgar: 10:00 – 20:00
Jól og áramót
- Þorláksmessa: 10:00 – 14:00
- Aðfangadagur: 09:00 – 11:00
- Jóladagur: Lokað
- Annar í jólum: Lokað
- Gamlársdagur: Lokað
- Nýársdagur: Lokað
Myndir
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
2024 | Stakt gjald | 10 miðar | 30 miðar | Árskort |
---|---|---|---|---|
Börn, 6 - 17 ára | 350 kr | 3.000 kr | 3.000 kr | |
Fullorðnir, 18 - 66 ára | 1.050 kr | 5.600 kr | 14.200 kr | 34.000 kr |
Eldri borgarar, 67 ára + | 470 kr | 4.200 kr | 17.000 kr | |
Sturta | 500 kr | |||
Sundföt | Handklæði | Handklæði & sundföt | ||
Leiga | 950 kr | 950 kr | 1.560 kr | |
Sund, handklæði & sundföt | 2.200 kr |