Opnunartímar um páska 2024

Seltjarnarneslaug

Vatnið í lauginni kemur úr borholu í nágrenninu með mjög steinefnaríku vatni. Laugin er vinsæl hjá exemsjúklingum sem telja þetta vatn þurrka húðina minna en annað sundlaugarvatn.

  • Pottarnir eru 4 með hitastigi frá 37° uppí 44° og þar af einn með nuddi.
  • Það eru tvær sundlaugar, barnalaugin er með 35°heitu vatni og er notuð til sundnámskeiða yngri barna
  • og til afslöppunar, en 25 metra laugin er með 29°heitu vatni fyrir sundfólk, sundleikfimi og leikja stærri barna og unglinga.
  • Síðast en ekki síst er 30cm djúp vaðlaug með nokkrum leiktækjum fyrir þau yngstu og hitastigið er 37-38°.
  • Á útisvæðinu er einnig mjög gott eimbað.
  • Fjórir búningsklefar, tveir stærri inni og tveir útiklefar með sér sturtu og salernisaðstöðu.
  • Að lokum er svo ágætis stór rennibraut.

Í sundlaug Seltjarnarness er glæsileg aðstaða fyrir fatlaða einstaklinga.

Aðgangur klefans er þannig að segulkort er fengið í afgreiðslu sem opnar hann rafrænt og um leið og einhver er í klefanum logar rautt ljós á ganginum fyrir framan til merkis um að hann sé upptekinn. Eins er um öryggi að ræða því skynjarar segja til um hvort sé ekki örugglega hreyfing inni.

Klefinn er búinn 6 skápum og rúmgóðum sturtuklefa og salerni og sérstaklega hannaður með það fyrir augum að fatlaður einstaklingur getur komið með sína aðstoðarmanneskju óháð kyni.

Afgreiðslutími

Opnunartími

  • Mánudaga – föstudaga:  06:30 – 22:00
  • Laugar- og sunnudaga:  08:00 – 19:30

Myndir

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

*1.000 kr endurgreiddar við skil.

2024Stakt gjald10 skipti3ja mán kort1/2 árs kortÁrskort
Börn, 0 - 5 ára0 kr
Börn, 6 - 18 ára140 kr1.300 kr12.000 kr
Fullorðnir1.200 kr5.800 kr15.300 kr21.800 kr42.100 kr
SundfötHandklæði
Leiga1.350 kr*1.500 kr*

Staðsetning